Samsett innrétting – 2041 mm – #14
Öflug og vönduð verkstæðisinnrétting sem hentar jafnt fyrir atvinnuverkstæði, vinnustaði og heimabílskúra. Innréttingin er úr dufthúðuðu stáli með króm handföngum og pumpum á efri skápum sem gera opnun og lokun auðvelda og örugga.
Skáparnir eru allir læsanlegir og skúffurnar renna mjúklega á kúlulegum sem tryggir góða notkun í daglegu starfi. Borðplatan er úr endingargóðum krossviði sem þolir mikla notkun, en einnig er hægt að sérpanta hana í ryðfríu stáli.
Með rúmgóðum skúffum, breiðum vinnufleti og sterkbyggðri hönnun færðu fjölhæfa og faglega lausn fyrir skipulag og vinnu.
Innréttingarnar er einnig hægt að sérpanta í öðrum litum eftir óskum.
Mál:
-
Breidd: ? mm
-
Heildarhæð: 2000 mm
-
Hæð vinnuborðs: 946 mm
- Hæð að efri skápum: 1650 mm
Endilega hafðu samband og fáðu ráðleggingar og tilboð.
Hafa samband









