Samsett innrétting – 2275 mm – #1
Öflug og vönduð verkstæðisinnrétting sem hentar jafnt fyrir atvinnuverkstæði, vinnustaði og heimabílskúra. Innréttingin er sterkbyggð með slitsterkri málmáferð og handföng úr áli.
Skúffur renna mjúklega á kúlulegum og borðplatan er úr endingargóðu efni sem þolir mikla notkun. Allir skápar og skúffur eru læsanlegir til að tryggja öryggi verkfæra og búnaðar. Með hillum, rúmgóðum skúffum og breiðum vinnufleti færðu fjölhæfa og faglega lausn fyrir skipulag og vinnu.
Borðplötur eru úr krossviði, en einnig er hægt að sérpanta þær í ryðfríu stáli.
Hægt er að sérpanta innréttingarnar í öðrum litum.
Mál:
-
Breidd: 2275 mm
-
Heildarhæð: 2000 mm
-
Hæð vinnuborðs: 946 mm
-
Hæð að efri skápum: 1650 mm
Endilega hafðu samband og fáðu ráðleggingar og tilboð.
Hafa samband









