Samsetti innrétting – 1361 mm – #5

Öflug og vönduð verkstæðisinnrétting sem hentar jafnt fyrir atvinnuverkstæði, vinnustaði og heimabílskúra. Innréttingin er úr dufthúðuðu stáli með króm handföngum og pumpum á efri skápum sem gera opnun og lokun auðvelda og örugga.

Skáparnir eru allir læsanlegir og skúffurnar renna mjúklega á kúlulegum sem tryggir góða notkun í daglegu starfi. Borðplatan er úr endingargóðum krossviði sem þolir mikla notkun, en einnig er hægt að sérpanta hana í ryðfríu stáli.

Með rúmgóðum skúffum, breiðum vinnufleti og sterkbyggðri hönnun færðu fjölhæfa og faglega lausn fyrir skipulag og vinnu.

Innréttingarnar er einnig hægt að sérpanta í öðrum litum eftir óskum.

Mál:

  • Breidd: 1361 mm

  • Heildarhæð: 2000 mm

  • Hæð vinnuborðs: 946 mm

  • Hæð að efri skápum: 1650 mm

Endilega hafðu samband og fáðu ráðleggingar og tilboð.

Hafa samband
Vörunúmer: comb5 Flokkur: